Ég er komin með leið á bloggi og ætla ekki að skrifa meira á þessa síðu að sinni.  Ef til vill nenni ég að taka upp þráðinn í haust.  Hafið það gott í sumar og takk fyrir mig.
Hilsen,
Simmi
Búlgaria númer fimm.  Hræðileg lag.
Bömmer að úkraína skyldi ekki vinna.
Írland og UK í síðustu tveimur sætunum. Breska lagið setti sennilegast met í hallærisgangi.
Slóvenía númer 15.  Ég fílaði það í botn og spáði því inná topp 4.  Skáphurðin er greinilega opin.  Lettar voru líka of neðarlega.
14 af 16 efstu eru austur evrópuþjóðir.  Hinar tvær eru Grikkland og Tyrkland.
Georgía númer 12.  Ertu ekki að djóka?  Jafnvel verra en Búlgarska lagið.
Skandinavía fær útreið í keppninni.
Finnar eru gott fólk.
Eiríkur Hauksson er frábær maður.
Rosalega verður gott að koma heim.
Það er talsvert uppnám í gangi hér í Evróvisjónlandi eftir úrslitin í kvöld. Austurevrópuþjóðirnar röðuðu sér í vinningsætin. Vestasta landið sem komst áfram var Slóvenía, sem þó tilheyrir austurblokkinni.  Það er mikið rætt um það núna að þessi úrslit verði til þess að reglum keppninnar verði breytt.  Væntanlega verður þó hægt að ráða betur í spilin eftir að stigagjöfin verður gerð opinber eftir úrslitin á laugardaginn.  Það liggur fyrir að keppninni verður breytt með einhverjum hætti eftir tvö ár, en það er meira vegna þess að þjóðirnar eru orðnar of margar til að komast fyrir í núverandi fyrirkomulag.  Úrslitin í kvöld er klárlega vatn á myllu þeirra sem tala fyrir tveimur undanúrslitum.  Þá er til dæmis rætt um það fyrirkomulag að bara fimm efstu þjóðir í hverri úrslitakeppni komist beint áfram í úrslitin árið eftir, í stað 10 einsog núna.  Allar hinar, 36-40 þjóðir, þyrftu að keppa á tveimur undanúrslitakvöldum.  Tíu kæmust upp úr hvorum undanúrslitariðli og þannig yrðu 25 þjóðir í úrslitum.
Sjáum hvað setur.  Ég get alla vega fullyrt það, eftir að hafa rætt við fólk baksviðs, frá hinum ýmsu Evrópulöndum, að þessi úrslit fara gríðarlega öfugt ofan í marga.  Margir evróvisjónspekingar eru illir vegna þeirra.  Og þetta snýst ekki um Eirík eða ísland, heldur þá staðreynd að ekki eitt einasta lag frá vestur Evrópu komst áfram.  En Búlgaría og Georgía runnu í gegn, svo dæmi sé tekið.  Meira seinna.
Á þessari stundu sit ég í þularklefanum í Hartwall höllinni í Helsinki og er að horfa á eina af þremur generalprufum sem haldnar eru fyrir keppnina.   Það er selt inná generalprufurnar og því er slatti af fólki í húsinu, þó ekki húsfyllir.   Okkar lagi var vel tekið, í það minnsta var ekkert púað einsog í fyrra. Eiríkur var númer fimm í röðinni og skilaði sínu nánast óaðfinnanlega.  Hann var pínku óstyrkur fannst mér í upphafi lagsins en það lagaðist fljótt.   Algerlega óháð því hvort fólki finnst íslenska atriðið gott eða slæmt, Eiríkur töff eða ekki, þá eru allir sammála um að hann er hrikalega kraftmikill söngvari.  Þetta lag hentar honum vel.  Flytjendurnir hér eru reyndar ákaflega misjafnir.  Sumir eru rammfalskir, til að mynda Daninn og Hvítrússinn.  Lögin eru mjög fjölbreytt í ár, í undanúrslitunum má til að mynda heyra fimm rokklög, slatta af poppi, klassískan söng, blús og svo náttúrulega eitthvað af rusli einsog vera ber í Júró.
Önnur generalprufan verður í kvöld.   Meira síðar....
Ég veit svosem ekki hvað það er en hugsunarhátturinn hjá mér breytist talsvert þegar ég fylgist með þessum Evróvisjónsirkus.  Dæmi:  Hingað til hefur mér verið hjartanlega sama um karlmenn sem klæða í sig í nælonsokkabuxur og setja upp hárkollu.  Í dag hef hinsvegar raunverulega, vel ígrundaða og rökstudda skoðun á því að Úkraínska dragdrottingin sé frábær en sú Danska hreinræktað krapp.  Með sama áframhaldi verð ég mættur í djassballet eftir nokkra daga.  Maður minn lifandi.
Úkraínska lagið er frekar einfalt, en sprenghlægilegt á sviði.  Flytjandin kallar sig Verka Serduchka og er algerlega að stela senunni hér í Finnlandi.  Þetta er svona fífladrag og lagið límist við heilann, hvort sem maður vill það eða ekki.  Lætin í kringum Verku minna mjög á sirkusinn sem var í kringum Sylvíu nótt í fyrra.  Úkraína þarf ekki að taka þátt í undanúrslitunum en ég er klár á því að laginu vegnar vel í úrslitakeppninni.  Þetta er lag sem margir kjósa vegna þess að þeir fíla það, en þetta er líka lag sem margir munu kjósa til að gefa skít í keppnina.  Stórsniðugt.
Annars er algerlega ómögulegt að gera sér grein fyrir stöðunni hér.  Ég er sammála Eiríki Haukssyni sem metur líkur okkar 50/50.  Við eigum góðan séns á að komast áfram, en þó kæmi það ekkert á óvart þótt við sætum eftir.  Það eru svona þrettán til fimmtán lög sem eiga séns á að vera meðal 10 efstu í undanúrslitunum, restin er léleg.
Seinna í dag verður móttaka hjá íslenska sendiherranum hér í Helsinki.  Það er eitt af fjölmörgum kokteilboðum sem fylgja þessari keppni.  Ég skrópa í þessi boð öllsömul af mikilli samviskusemi enda er ég að fylgast með æfingum hér langt frammá kvöld.  Ætli maður kíki samt ekki í opnunarpartíið sem haldið verður í kvöld í Finnlandiahöllinni.  Þar mæta allir keppendur, sendnefndir þjóðanna og trilljón blaðamenn.  Ég held að nafnið, Finnlandíahöllinn, trekki vel að þessu sinni því mér sýnist á öllu að vel flestir blaðamenn hér séu ákaflega virkir alkar.
Guð, gefi mér æðruleysi
Til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt.
Kjark til breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Íslenski hópurinn er í rokna stuði.  Fyrsta æfingin gekk vel en það eru enn nokkur atriði sem þarf að fínstilla.  Önnur æfing verður haldin síðar í dag og í framhaldinu verður blaðamannafundur þar sem Eiríkur ætlar meðal annars að taka lagið.  Þessi æfingarennsli ganga þannig fyrir sig að það er mætt í höllina í smink til Svavars Arnar hálftíma áður en æfingin sjálf byrjar.  Síðan tekur við hálftími á sviðinu þar sem farið er yfir hreyfingar, myndvinnslu og þessháttar atriði.  Að æfingu lokinni hefur hópurinn 20 mínútur til að skoða upptökur af herlegheitinum og gera athugasemdir og breytingatillögur við myndvinnsluna.  Síðan tekur við hálftíma blaðamannafundur.  Sama rennsli er hjá öllum þjóðunum sem taka þátt svo þetta er hálfgerð færibandavinna.  Blaðamennirnir velja síðan þær þjóðir sem þeir vilja fylgjast með og mæta á æfingarnar og fundina.
Ég tók eftir því í gær að það var talsvert mikið horft á mig, bæði af öllum hommunum sem hér eru og einnig kvennfólkinu.  Í raun má segja að ég hafi verið mældur út og auðvitað var ég þess fullviss að ég væri spreyjandi kynþokka og sexappíl yfir Helskinki og nágrannasveitafélög í áður óþekktu magni.  Grimmur raunveruleikinn small í andlitið á mér þegar ég leit loks í spegil á hótelherberginu í gærkvöldi.  Ég er með bólu á stærð við boxhanska í smettinu.  Fyrst reyndi ég að fela hana með sminki en það breytti engu.  Núna leita ég um alla Helsinki af skipamálningu í húðlit til að þekja kvikindið.
Íslenski Evróvisjón hópurinn er komin til Helsinki eftir stutt og þægilegt ferðalag.  Ballið byrjar hjá Eiríki Haukssyni á morgun.  Þá er fyrsta æfing, blaðamannafundur og fleiri uppákomur. Við kíktum í höllina þar sem keppnin verður haldin og ég held að mér sé óhætt að fullyrða að þetta verður óvenju glæsilegt hjá Finnunum.  Sviðið og öll önnur umgjörð er mjög flott.   Við sjáum forsmekkinn af þessu í fréttum sjónvarps á morgun(laugardagskvöld) og að sjálfsögðu lúkkið á íslenska atriðinu. Tónlistaratriðin sem við sáum í dag renna stoðum undir þá fullyrðingu breskra sérfræðinga í Evróvisjón að keppnin í ár verður óvenju skrautleg.  Listamenn ganga sífellt lengra í að fanga athygli þessar þrjár mínútur sem þeir hafa á sviðinu og það verða nokkur verulega frumleg, skrítin og hallærisleg atriði þetta árið.
Nenni ekki að blogga meira því ég er ferlega þreyttur.  Ætla að reyna að henda inn færslum um Helsinkisirkusinn á hverjum degi.  Túrúlú....
Margir stjórnmálamenn falla í þann fúla pytt að sverta blaða- og fréttamenn þegar það gengur ekki nógu vel að fella keilur í pólitíkinni.   Í þessum fúla og daunilla polli svamla til að mynda saman þeir Davíð Oddsson og Össur Skarphéðinsson.  Þeir hafa báðir átt andvökunætur vegna óheiðarlegra fréttamanna á “Baugsmiðlum” og “Bláskjá”.   Margrét Sverrisdóttir tók sundsprett með þeim á dögunum þegar hún birti róg og níð um alla spyrla sjónvarpsstöðvanna á einu bretti í grein í Blaðinu.
Mér finnst varaformaður Íslandshreyfingarinnar hafa orðið sér til skammar með þessari grein.  Hún vænir spyrlana um óheiðarleika með því að fullyrða að þeir séu allir sem einn "innvígðir og innmúraðir í stjórnarflokkanna".  Engin fyrirvari – þeir eru allir undir sömu sök seldir.  Ekki eitt einasta dæmi nefnt.  Þessir spyrlar eru Sigmar Guðmundsson, Helgi Seljan, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, Brynja Þorgeirsdóttir, Svanhildur Hólm, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Egill Helgason.
Við fréttamenn höfum allir skoðanir á þjóðmálum.  Hver einn og einasti. Við kjósum allir einhvern flokk í kosningunum eftir nokkra daga.  Við afsölum okkur ekki réttinum til að hafa skoðanir þegar við hefjum störf á fjölmiðlum.  Margrét er hinsvegar sannfærð um að Heimdallarþáttaka fyrir 20 árum flækist fyrir fólki í dag.  Þetta er svakalega aumt.
Hver einasti fréttamaður þarf að gæta þess að láta ekki skoðanir sínar koma fram í vinnunni.  Það gildir jafnt um þá sem hafa starfað í ungliðastarfi stjórnmálaflokka og þá blaðamenn sem tekið hafa þátt í háskólapólitík eða einhverju öðru félagsstarfi.  Þetta gera blaðamenn á hverjum degi.
Ætli formaður Íslandshreyfingarinnar, Ómar Ragnarsson, sé sammála henni Margréti?  Engin hefur flutt fleiri fréttir af virkjanamálum en Ómar.  Engin er harðari virkjunarandstæðingur en Ómar.  Og trúið mér, sú andstaða kviknaði ekki í gær. Tókst formanninum hennar Margrétar ekki bara ágætlega að halda skoðunum sínum til hlés í fréttunum?
Ég átti ágætt spjall við Margréti um þetta í dag.  Hún sagðist í því spjalli treysta mér fyllilega sem fréttamanni og átti engin dæmi um að skoðanir mínar liti fréttafluttninginn.  Þrátt fyrir það finnst mér að hún skuldi mér og öðrum spyrlum afsökunarbeiðni vegna ómaklegra ummæla á opinberum vettvangi.  Svo væri líka gaman að heyra hvað Ómari finnst um málið.
Mæli með grein Egils Helgasonar um grein Margrétar.
Kötturinn Ronja kom heim í nótt með glaðning fyrir okkur heimilisfólkið.  Hún skreið inn um gluggann með fugl í kjaftinum og dundaði sér við að murka úr honum tóruna hér á stofugólfinu.  Mér finnst þetta nú hálfviðbjóðslegt, svona í ljósi þess að hér skríður Katla um öll gólf hin sprækasta.  Fuglinn fékk virðulega útför við hæfi.  Hans jarðnesku leifar hvíla nú í plastpoka útí ruslatunnu.  Ég hef lítið vit á dýrafræði og greini jafnilla á milli fugla og bílategunda. En ég held að þetta hafi verið bókfinka, álmkraki eða haförn.
Mér þykir vænt um fólkið sem les þessa bloggsíðu.  Ég held að lesendurnir séu vænsta fólk upp til hópa sem á allt gott skilið.  Aldrei myndi ég kalla tveggja tíma martröð, tilgangsleysi og tímaeyðslu yfir þessa vini mína.  Enn síður vil ég að lesendur mínir verði fyrir pyntingum eða líði sálarkvalir. Þessvegna mælist ég eindregið til þess að þið farið aldrei á bíómyndina The good shepherd sem Róbert DeNiro leikstýrir.  Það er hreint úr sagt skemmtilegra að klippa af sér tærnar með bitlausum garðklippum en að eyða tíma í þá leiðindaræmu.
Það er óþolandi að sitja undir rógi og bakmælgi á síðum blaðanna.  Ég get ekki setið þegjandi undir aðdróttunum um útlit mitt og karlmennsku án þess að bregðast við. Delarnir á DV leggjast lágt þegar þeir bregðast við þessar færslu hér, með því að birta níð um mig í dag.  Fullyrt er, án nokkurs fyrirvara, að ég eigi það sameiginlegt með Valtý Birni Valtýssyni, íþróttafréttamanni, að vera lágvaxinn fjölmiðlamaður.  HAAALLLLLLÓÓÓÓ.
Ég vísa þessu alfarið á bug.  Ég er 183 cm á hæð. Valtýr Björn er 113 cm á hæð.   Svo finnst mér DV bíta höfuðið af skömminni með því að líkja mér einnig við Þorstein Hreggviðsson eða Þossa.  Sem er rauðhærður.  Æra mín er í húfi og í fyrsta sinn á ævinni íhuga ég meiðyrðamál á hendur fjölmiðli.
Tvíhöfði er dásamlegt útvarpsefni.  Það er ekkert  fyndnara en þegar Jón Gnarr nær flugi sem nöldrandi sérlundaður kall eða kvartandi kelling í óborganlegum símatímum þáttarins.  Rexið og nöldrið í sjálfum mér er smávægilegt í samanburði við fjasið í karakterunum sem Jón Gnarr býr til – samt á ég að heita Íslandsmeistari í tuði atvinnumanna innanhúss.  Tvíhöfði “stelur” stundum efnivið í grínið úr raunveruleikanum.  Eftirfarandi orð Ármanns Jakobssonar um málfar í Kastljósi í nýlegu Fréttablaðsviðtali urðu þeim greinilega innblástur í síðasta þætti.
Mér finnst mikilvægt að málfar sé fjölbreytt og Ríkissjónvarpið þarf að vera með öðruvísi málfar en 70 mínútur. Ég slekk á Kastljósinu um leið og ég heyri fyrstu amböguna, það er oft snemma.
Auðunn: Djöfull er ég að fíla þig, maður. Þú horfir á 70 mínútur og Kastljósið stuðar þig.
Ármann: 70 mínútur voru það sem þær voru og voru ekkert að þykjast vera neitt annað. Kastljósið á að vera allt í senn og þá er stundum hætta á að málfarið sígi niður úr ríkissjónvarpsstaðlinum. Fólk á Íslandi hefur áhuga á málfari og það er það skemmtilega, að þetta er rætt. Persónulega leiðist mér þessi eilífðarnotkun á nafnhætti. Allar setningar byrja á "Við erum að horfa á " og svo framvegis, í staðinn fyrir að persónubeygja sagnirnar. Ég þoli það ekki, sérstaklega hjá ráðherrum og fyrirfólki.
Tvíhöfði leggur út frá þessum orðum Ármanns í þessum þætti hér (þetta er ca fyrir miðjum þætti.)  Rétt er að taka fram að ég er sammála Ármanni í því að umsjónarmenn og gestir Kastljóss og allir aðrir fjölmiðlar þurfa að vanda málfarið.  Grín Tvíhöfða er hinsvegar óborganlegt.
Mér þótti óskaplega gaman að leika mér í sandkassa þegar ég var lítill.  Að moka sandi í fötu var toppurinn á tilverunni.  Á þessum tíma var yfirleitt lítið amast við því þótt ég borðaði sand í tíma og ótíma enda var umræða um heilsu og hollustu skemmra á veg komin en í dag. Gott ef spóluormar þóttu ekki bara hollir fyrir meltinguna.   Ekki var það heldur neitt tiltökumál þótt ég væri drullugur upp fyrir haus og því var tekið með jafnaðargeði þegar ég kom hlandblautur inn í drekkutíma.  Umhverfið gerði ekki miklar kröfur til mín á þessum árum og lífið var ákaflega áhyggjulaust.
Í dag eru breyttir tímar.  Mér þykir ekki lengur töff að vera skítugur og ég hef stórlega dregið úr sandáti.  Ætli það kallist ekki þroski þegar fólk lætur af þeirri hegðun sem þótti sjálfsögð í leikskólanum.   Sem betur fer fullorðnumst við flest þó okkur reynist misjafnlega létt að láta af barnaskapnum. Á fjögurra ára fresti hellist nefnilega nostalgíukast yfir sumt fullorðið fólk og það dettur aftur á leikskólaplanið þegar það lendir í rökræðum.  Þetta eru atkvæðasmalar flokkanna sem skrifa andlaust blogg í akkorði.  “Flokkurinn minn er langbestur, formaðurinn minn er æðislegastur og flutti frábærustu ræðu sem ég hef heyrt.  Aðrir formenn eru glataðir”.  Kosningabaráttan er eitt allsherjar drullumall í fötu hjá þessu fólki enda er þetta nákvæmlega sama stefið og heyrist dag hvern hjá krökkunum  á Grænuborg.   “Pabbi minn er sterkari en pabbi þinn.  Neiheits, pabbi minn er sko lögga og getur léttilega lamið pabba þinn”.
Þessi þroskaða rökfimi magnast nú með hverjum deginum.  Fótgönguliðum flokkanna sést ekki fyrir í ákafri baráttu sinni fyrir göfugum málstað.  Fyrir vikið líkjast þeir rígfullorðnu fólki sem bankar hlandblautt uppá hjá vinum sínum og biður þá að koma út að róla.  Þetta er fullorðið fólk í sandkassaleik. Reyndar á þessi sandkassaheimspeki einnig við flesta karlmenn sem velja sér enskt fótboltalið til að halda með.  En ætli sé ekki óhætt að gera meiri vitsmunakröfur þegar rætt er um pólitík en enska boltann. Svona rörsýn hjá annars skynsömu fólki á ágæti eigin flokka, er ákaflega leiðigjörn.
Það er líka barnalega einföld lífspeki sem gerir ráð fyrir því að bara einn flokkur sé góður og allir aðrir fullkomlega vonlausir.  “Ef flokkurinn minn kemst til valda verður allt rosalega gott og fallegt og við verðum ógeðslega rík.  Ef aðrir flokkar komast til valda þá verða aldraðir og öryrkjar krossfestir á gaddavír með innyflin úti og við deyjum öll fátæk úr skyrbjúg.  Og svo verður landinu sökkt náttúrulega”.   Fátt er klisjukenndara en þetta innantóma lofrullufjas sem flokkagrúppíur demba yfir okkur.  Sölufrasarnir eru jafnfrumlegir og talsettar tannkrems - og þvottaefnisauglýsingar í sjónvarpi.  Og þeir skilja jafnmikið eftir.
Sumt af þessu minnir reyndar á eldheita trúarsannfæringu sem fátt fær haggað.  Ímyndið ykkur ef Gunnar í Krossinum færi nú að flytja predika eldmessur úr stefnuskrá flokka.  Bókstafstrúin og sannfæringarkrafturinn ekki lengur bundin við bíblíuna heldur nýjustu stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokks eða Vinstri grænna.  Ætli það myndu margir nenna að rökræða við hann?
(Þessi pistill birtist í Viðskiptablaðinu miðvikudaginn 18 apríl.)