Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Himnarnir hrynja...

Jæja, er ekki komin tími á gott fótboltablogg? 

 

Andsk, djö... helv, árans fjandskotans, andsk, djö... helv, árans fjandskotans, rækallinn, árans fjandskotans, rækallinn, andsk, djö... helv, árans fjandskotans, andsk, djö... helv, árans, fjandskotans, rækallinn, árans fjandskotans, rækallinn, andsk, djö... helv, árans fjandskotans, andsk, djö... helv, árans fjandskotans, rækallinn, árans fjandskotans, rækallinn andsk, djö... helv, árans fjandskotans, andsk, djö... helv, árans fjandskotans, rækallinn, árans fjandskotans, rækallinn.

 

 

 Að tapa fyrir Blackburn er einsog að láta prjónablaðið Ýr skúbba sig.    

Ferðaheimsspeki fyrir byrjendur

Það leita alltaf á mig heimspekilegar spurningar þegar ég ferðast. 

Að koma til útlanda ögrar gjarnan þeim hugmyndum sem maður hefur um lífið og tilveruna.  Oft uppgötva ég eitthvað nýtt og spennandi.  Þá velti ég því gjarnan fyrir mér af hverju við íslendingar tökum ekki upp sama sið.   Svo getur þetta líka verið öfugt.  Maður þakkar sínum sæla fyrir íslenskar venjur og hefðir af því að erlendir siðir virka fráhrindandi.

 

Ekki dettur mér til hugar að vera með fordóma.  Því síður vil ég hreyta ónotum í þá þjóð ég hef verið í heimsókn hjá síðustu daga.  En persónulega er ég ekki hrifin af þeirri siðvenju Bandaríkjamanna að hafa salernisskálarnar nánast smekkfullar af vatni.  Það bara höfðar ekki til mín.

 

Annars er Zygmarr bara í stuði.


Draumadagur

Ég er hér með uppskrift af draumadegi sem ég er til að miðla til lesenda minna. 

 

Dagurinn hefst með bílferð að Leifsstöð.  Leigubílstjórinn er eldri maður sem dottar ákaft á meðan á ferð stendur.  Ég er þakklátur fyrir að vera á lífi eftir þá ferð. Efast um að bílstórinn hafi meikað það til baka.  

 

Við tekur 20 tíma ferðalag með mjög löngu stoppi á Heathrow.  Það er engin tilviljun að Heathrow rímar við Deathrow.  Ferðalagið inniheldur þrár flugvélamáltíðir og bragðlaukarnir eru varanlega skaddaðir.  Meltingafærin bjargast sennilegast við illan leik.

 

Á leiðarenda kemur í ljós að ferðataska er týnd. Ofsaþreyta og almennt máttleysi sem rekja má til lélegs fæðist síðasta sólahringinn, kemur í veg fyrir að fulltrúar flugfélagsins verði þolendur íslensks fúkyrðaflaums í æðsta veldi.

 

Annars er Zygmarr bara í stuði.


Klámráðstefnugestir ATH.

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur hótel Saga neitað ykkur um gistingu.  Bændur þessa lands hafa tekið þá mórölsku afstöðu að erlendir klámgerðarmenn megi alls ekki skoða klámrásirnar sem í boði eru á hótelinu.  Því er ljóst að þið eruð hornreka og fáið hvergi inni.  Af einskærri aumingjagæsku vil ég því bjóða ykkur uppá heimagistingu í Kórsölum eitt.  Geymslan er laus. 

Krónikan. Pistill 1.

(Hér birtist gamall pistill eftir mig úr fyrsta blaði Krónikunnar sem kom út 15 febrúar.)

  

Allir sem fylgjast með fótbolta vita að í janúar opnast leikmannamarkaðurinn. Þá er leikmönnum heimilt að skipta um lið.  Svikalaust gleyma þeir gömlum hugsjónum og skipta um treyju.  Ganga til liðs við óvininn.  Ég er ekki frá því að íslensk stjórnmál séu að verða eins og enski boltinn.  Að undanförnu hefur leikmannaskiptaglugginn verið galopin í stjórnmálunum.   Hver stjórnmálamaðurinn á fætur öðrum hefur skipt um treyju.   

Nýverið skipti Valdimar Leó Friðriksson um lið.  Hann fattaði daginn eftir herfilega útreið í prófkjöri að hann er á móti ESB en ekki með.  Prófkjörstapið hristi svo rosalega uppí hugsjónum þingmannsins að í stað þess að berjast með Samfylkingu fyrir hófsamri stefnu í innflytjendamálum, situr hann á fremasta bekk í klappliðinu þegar Guðjón Arnar varar við því að til landsins komi berklasjúkir innflytjendur og glæpamenn.  Þetta eru svo mikil umskipti að sú spurning kviknar hvort hann sé ennþá með sömu konunni?  Eða haldi með sama fótboltaliðinu? 

Það er reyndar velþekkt í lífinu að fólk sem lendir í alvarlegum áföllum endurmeti líf sitt.  En er það sannfærandi að stjórnmálamaður sem verður fyrir alvarlegu áfalli í prófkjöri, endurmeti hugsjónir sínar?  Fatti skyndilega við tapið að hann var í vitlausu liði. 

Sama gerist með Kristinn H Gunnarsson.  Samkvæmt alþingisvefnum hefur Kristinn verið í fleiri stjórnmálaflokkum en hjónaböndum.  Þingflokkarnir sem Kristinn H hefur verið í, eru jafnmargir börnunum mínum.  Og ég á gommu af börnum.  Einn daginn er Kristinn eldheitur baráttumaður hugsjóna Alþýðubandalagsins og krefst þess að Ísland gangi úr Nató.  Næsta daginn faðmar hann Framsóknarflokkinn og má ekki til þess hugsa að Ísland gangi úr Nató.  Stuttu síðar, eftir áfall í prófkjöri, kviknar enn eitt ljósið.  Frjálslyndir eru málið.   

Gamall Allaballi er semsagt komin í þjóðernissinnaðann flokk sem oft er skilgreindur til hægri.  Ef þetta er heimfært uppá fótboltakúltúrinn þá jafngildir þetta því að Kristinn hafi yfirgefið Liverpool og gengið til liðs við Manchester United af því að þjálfarinn valdi hann ekki í liðið.  Rétt er að taka fram að það er ekki við hæfi að nefna Arsenal í þessari líkingu því það spila svo margir útlendingar með liðinu. 

Einfaldast er að líkja Frjálslyndum við Chelsea vegna örra mannabreytinga á síðustu misserum.  Flokkurinn er nýbúin að selja Gunnar Örlygs og Möggu Sverris en keypti Valdimar og Kristinn í staðinn.  Flokkurinn er að verða einsog brautarstöð.  Endalaust rennerí af fólki. Kannski er þetta ekkert skrýtið.  Það er nefnilega vel þekkt að ein helsta lækningin við áfallastreitu fallandi stjórnmálamanna er efsta sætið á framboðslista.  Í því ljósi eru Frjálslyndir ákjósanleg áfallahjálp í dag.   

Annars hefðu Kristinn og Valdimar líka getað gengið til liðs við framboð eldri borgara og öryrkja. Það framboð náði þeim ævintýralega árangri á dögunum að klofna í tvennt áður en búið var að raða á lista.  Það hefði vissulega verið spennandi að sjá Kristinn H miðla málum í þeim félagsskap. 

Sá margtuggni hallærisfrasi stjórnmálamanna sem hætta í fússi í stjórnmálaflokki að þeir hafi ekki yfirgefið flokkinn, heldur flokkurinn þá, á reyndar glettilega vel við í tilfelli Kristins H.  Alþýðubandalagið lagði sig niður og rann inní Samfylkinguna.  Framsóknarflokkurinn hefur ekki bara yfirgefið Kristinn heldur einnig sjálfan sig, því ef marka má nýjustu skoðanakönnun Fréttablaðsins er flokkurinn ekki nema örfá ærgildi að stærð.  Samkvæmt könnunni getur flokkurinn varla mannað firmalið í fótbolta, hvað þá meira.   

Sá sem heldur með Liverpool, Manchester United eða KR í fótbolta gerir það af hugsjón.  Og talsverðum barnaskap reyndar líka, því þetta eru ömurleg lið.  En það er aukaatriði því tilfinningarnar eru ekta.  Í stjórnmálunum eru hugsjónir teygjanlegra hugtak.   Að lokum vil ég lýsa því yfir að það kemur ekki til greina að ég yfirgefi Arsenal til að ganga til liðs við Frjálslyndaflokkinn.


Yfirlýsing frá Kastljósi

Komið hefur í ljós að ritstjórn Kastljóssins hefur alls ekki verið nógu mikið á tánum við efnisöflun.  Okkur þykir það leitt því við viljum alls ekki bregðast áhorfendum okkar.

 

Keppinauturinn á Stöð tvö skúbbaði okkur rækilega í kvöld.  Ítarleg tveggja daga rannsóknarvinna Íslands í dag  leiddi í ljós, svo hafið er yfir allan skynsamlegan vafa, að Bónusverslanirnar selja kartöflur.  Segi og skrifa, KARTÖFLUR.

 

 

Við þetta verður ekki unað.  Kastljós svarar með rosalegu skúbbi.  Fylgist vel með næsta þætti en þá afhjúpum við þá sláandi staðreynd að 10/11 búðirnar selja bæði vínber og tannkrem.  Djúsí stöff.


Sérkennileg þjóðremba

Ekki ætla ég að hætta mér útá þann hála ís að sálgreina íslensku þjóðina.  En hvernig í ósköpunum stendur á því að að í hvert sinn sem einhver erlend stórstjarna á rómans með íslendingi þá finnur sumt fólk til þjóðarstolts?  Þessa stundina er hluti landsmanna í einhverju þjóðremburússi af því að einhver útlendur leikari deitaði íslenska leikkonu um helgina.  Afrek handboltalandsliðsins, Eiðs Smára og Bjarkar Guðmundsdóttur eru hálfhællærisleg í samanburði við þennan glæsta atburð í sögu þjóðarinnar ef marka má kaffistofuspjall og sumar bloggsíður.  Gott ef sú krafa er ekki uppi að Ólafur Ragnar pússi upp medalíu handa þessum Jude Law sem ber hróður íslenskrar þjóðar um heimsbyggðina. 

Eða jú annars, ég treysti mér vel til að sálgreina þessa þjóð.  Hún er klikk.


Ánægjuleg ofbeldisverk

Ég sé það í fréttunum að leikmenn Liverpool hafa dundað sér við það síðustu daga að berja hvern annan með gólfkylfu.  Það finnst mér vel til fundið hjá þeim, því fátt veit ég skemmtilegra en þegar leiðinleg fótboltalið molna  innanfrá.  Ég vona bara að þeir hafi notað dræverana.

 

Þetta ofbeldisform virðist blunda  í mörgum Liverpoolmanninum.  Þórhallur Gunnarsson er til að mynda alltaf með gólfkylfur í skottinu á bílnum sínum.  Bölvaður fanturinn. 

 

Annars er það að frétta af okkur í Kastljósinu að við erum óskaplega ánægð með þetta nýja framtak lögreglunnar sem gengur útá að þolandi og gerandi ræða saman.  Vonandi verður þetta til þess að við getum framvegis rætt við ritstjórann okkar á jafningjagrundvelli.


mbl.is Gerandi og þolandi ræða saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Júrósýn

Ég bara spyr.  Var eitthvað að marka þessa atkvæðagreiðslu í Evróvisjón?  Ég náði ekki sambandi í númerið sem fylgdi lagi dr Gunna og Heiðu fyrr en seint og um síðir.  Þrjóskan í mér kom í veg fyrir að ég gæfist upp, en hvað með þá sem eru ekki jafn þrjóskir.  Hættu þeir við?  Var kannski jafnerfitt að ná í hin númerin?

 

Makalaust að langbesta lagið skyldi ekki ná inná topp 3.  Huggun harmi gegn að langnæstbesta lagið vann. 

 

Í fyrra sendum við leikna fígúru með munnræpu og athyglisbrest.  Í ár sendum við rauðhærðan Norðmann.  Á næsta ári er fullkomlega lógískt að senda Geir Ólafs.


Niðurgreiðsla á klámi?

Eftir því sem mér skilst á fréttum er von á helling af klámmyndaleikurum hingað til lands eftir fáeinar vikur.  Meðal annars ætlar þetta lið að gera nokkrar klámmyndir hér á landi.  Er nokkur hætta á því að 12 prósent af framleiðslukostnaðinum verði endurgreiddur af ríkinu einsog gerist þegar siðprúðari kvikmyndagerðarmenn koma hingað til að filma?  Það væri nú býsna tragíkómískt  ef skattpeningar Sóleyjar, Katrínar og Bryndísar rynnu til niðurgreiðslu á smokkum ofan í hollenska klámmyndajöfra.


Næsta síða »

Zygmarr

sigmarg@ruv.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 852681

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband