Laugardagur, 12. maí 2007
Júró uppgjör
Búlgaria númer fimm. Hræðileg lag.
Bömmer að úkraína skyldi ekki vinna.
Írland og UK í síðustu tveimur sætunum. Breska lagið setti sennilegast met í hallærisgangi.
Slóvenía númer 15. Ég fílaði það í botn og spáði því inná topp 4. Skáphurðin er greinilega opin. Lettar voru líka of neðarlega.
14 af 16 efstu eru austur evrópuþjóðir. Hinar tvær eru Grikkland og Tyrkland.
Georgía númer 12. Ertu ekki að djóka? Jafnvel verra en Búlgarska lagið.
Skandinavía fær útreið í keppninni.
Finnar eru gott fólk.
Eiríkur Hauksson er frábær maður.
Rosalega verður gott að koma heim.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.3.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 65
- Frá upphafi: 852669
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
kristinalma
-
soley
-
730
-
nielsen
-
bjarnihardar
-
atlifannar
-
ulfarsson
-
halldorbaldursson
-
hallgri
-
snorris
-
gaflari
-
adalheidur
-
hlynurh
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
salvor
-
maggaelin
-
hlynur
-
sms
-
svenni
-
jonasantonsson
-
belle
-
bryndisisfold
-
hlinnet
-
poppoli
-
vefritid
-
olafurfa
-
dabbi
-
palinaerna
-
gudbjorn
-
dofri
-
sveinnp
-
hallurg
-
davidl
-
gattin
-
nonninn
-
dogg
-
joningi
-
alcandiary
-
hannibal
-
heida
-
hallgrimurxd
-
fanney
-
dagga
-
hansen
-
lara
-
bet
-
hrannarb
-
sasudurnesjum
-
feministi
-
herdis
-
truno
-
thorarinnh
-
ibbasig
-
vertinn
-
fletcher
-
panama
-
ea
-
doriborg
-
ingo
-
kleopatra
-
kolbrunb
-
cactusbuffsack
-
jakobsmagg
-
gudmbjo
-
gudfinnur
-
aas
-
feron
-
doolafs
-
stefanthor
-
ingabesta
-
maggabest
-
baldurjon
-
olafursv
-
vefarinnmikli
-
valdiher
-
gunnardofri
-
partners
-
bardurih
-
ingimarb
-
birnamjoll
-
ranur
-
baldvinj
-
elvarj
-
eyvar
-
killerjoe
-
tidarandinn
-
kosningar
-
id
-
disill
-
thordursteinngudmunds
-
darwin
-
dolli-dropi
-
bonham
-
gastone
-
heiddal
-
anno
-
hhbe
-
veggurinn
-
kolgrimur
-
godsamskipti
-
kiddip
-
sigfus
-
reykfjord
-
tharfagreinir
-
agnesasta
-
zerogirl
-
vestfirdir
-
sveddigeir
-
eyvi
-
heidathord
-
ottarfelix
-
klaralitla
-
bergurben
-
sigrunb
-
grettir
-
einarsson
-
rattati
-
magginn
-
elinora
-
jonthorolafsson
-
xsnv
-
mafia
-
bleikaeldingin
Tenglar
Gettu Betur
- Snorri (MH)
- Steinþór (Borgó)
- Þorkell (MS)
- Magnús Þorlákur (MR)
- Magni (MA)
- Jón Ingi (MK)
- Hafsteinn (Versló)
- Björn Reynir (MR)
- Davíð Þór
- Stebbi Páls
Frændgarður
Bransinn
- Þórir
- Svanhildur Hólm
- Arna Schram
- Friðrik Þór
- Þórarinn
- Hrafn
- Freyr Gígja
- Kristinn Hrafnsson
- Sölvi Tryggva
- BLOGGARINN EINI SANNI
- Helgi Seljan
- Halla Gunnarsdóttir
- Sigga Víðis
- Heimir Karls
- Sirrý
- Þórhildur
- Halldór Baldursson
- Jón Axel
- Ingvi Hrafn
- Atli Fannar
- Lára Ómars
- Hössi
- Kristján G.
- Hlynur fasteignaprangari
- Þórunn Hrefna
- Gunnar læknir
- Valdi
- Sigga Dögg (Nýja bloggið)
- Finnur Beck
- Brynja Björk
- Davíð Þór
- Denni Sævarr
- Pétur Gunn
- Þorsteinn J
- sme
- orðið á götunni
- Guðmundur Magnússon
- Davíð Logi
- Ómar
- Árni Matt
- Andrés Magg
- Howser
- G.Pétur
- Eiríkur Norðdahl
- Snorri Sturlu
- Héðinn
- Hallgrímur
- Sigurður Bogi
- Jónas
- Símon
- Valur Grettisson
- Bergljót
- Guðrún Helga
Ég les
- Þorri
- Kristján B Jónasson
- Bjarni Harðar
- Stefán Friðrik
- Áslaug Ósk
- Sveinn Waage
- maggabest
- Friðjón
- Ásta Lovísa
- donpedro
- Siggi Kári
- Gummi Steingríms
- Marshall
- Stefán Páls
- Bjarni Már
- Gunnlaugur 100 mílur
- Páll Ásgeir
- Gísli
- Bingi
- Ármann
- Sverrir
- Spretturinn
- James Blond
- Þorbjörn
- Grímur
- Helga vala
- Anna vélstýra
- Pétur popp
- Jóhann Jökull
- Gunna Polly
- Stefán Einar
- Máni
- Slúðrið
Athugasemdir
Það hefur verið mikið talað um að þessar svokölluðu Austantjaldsþjóðir gefi hvort öðru stig, og skipti þá litlu um gæði lags og/eða flytjanda.
En hvað gerðu Norðurlandaþjóðirnar, gáfum við ekki Finnum og Svíum 12 og 10 stig, þrátt fyrir að sænska lagið væri afskaplega lélegt. Er ekki bara málið það að þjóðir eins og England og fleiri þjóðir nenna ekki lengur að taka þátt í þessu júródæmi, ég man þegar ég bjó í Englandi að það fór ekkert fyrir þessari keppni, man bara þegar mamma hringdi og sagði mér frá frammistöðu Palla, s.s. Júró búið og enginn nennti að pæla í því í Englandi. Aftur á móti er stemming fyrir keppninni hérna á Norðurlöndunum og svo í A-Evrópu og þar nenna menn að kjósa, annað en við í V-Evrópu. Að skipta keppninni upp í austur og vestur, þ.e. forkeppninni er bara rugl, ég meina, eigum við þá ekki líka að skipta undankeppni/riðlakeppni í fótbolta í austur og vestur, svona til að reyna að auka líkurnar á að við komust á úrslitamót í knattspyrnu :) Við getum nefnilega ekki rassgat þar heldur.
Héraðströllið, 13.5.2007 kl. 00:04
Mér finnst bara það besta að Serbía van Euro. Skil bara ekki úrslit miðað við gæði hjá Ukrainumönum. Það var hrein sirkus. Hins vegar Átti Slóvenía skilið að vera einhver stað milli 4-10 sæti en lenti minnir mér á 17.
Andrés.si, 13.5.2007 kl. 00:18
Fyrir utan það hvað Finnar gerðu þessa keppni grand og flotta þá er þetta svona jafnleiðinlegasta Júróvision sem ég hef fylgst með - og ég hef alltaf horft frá því farið var að sýna keppnina. Eini ljósi punkturinn til viðbótar við Finnana var óborganlega fyndinn og skemmtilegur íslenskur þulur sem ég vona að hætti aldrei að lýsa Júróvision (maður á alltaf að segja eins og manni finnst). Takk fyrir skemmtunina.
Anna Ólafsdóttir (anno), 13.5.2007 kl. 00:31
mér fannst belgía æði, júhú, og þjóðverjar, ungverjaland, svíar, finnar og BENNI TROMMARI ER LANG LANG FLOTTASTUR, hægt að dansa við tyrkina og rússana, margir góðir söngvarar, áfram diskó og blús og funk og djass, lifi ugly betty og jákvæðnin og það sem er öðruvísi! það er hættulegt að skipta upp í vestur og austur, viljum við annan múr???!!! þarf samt að breyta einhverju... kannski mest íslendingum og hætta að taka þessa frábæru skemmtun alvarlega! go palli! simmi, takk kærlega fyrir kommentin þín og skemmtunina, þú bjargaðir júró í ár, takk ;o)
boggs (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 00:42
hvað meinarðu Simmi minn? ef eitthvað af austur evrópu hefði átt að vinna þá var það Serbía. Reyndar, ef eitthvað lag hefði átt að vinna júró var það Serbía. Flott lag, roooosalega vel sungið og einlægt og það sem er best, algjörlega laust við eitthvað sjó, búningaoflæti og etníska trommara. Mér finnast þessi úrslit eiginlega bjarga keppninni.
Þarf reyndar að taka fram að ég horfði nú ekkert sérstaklega athugult á alla keppnina í dag (né á fimmtudag) en sá þó öll lögin í þremur efstu.. og var langánægðust með Serbó :D
vælan (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 00:46
jamm......tetta søkkar big tæm
Munid eftir laginu med Madonnu "Ray of light"..........hafid tad i huga tegar tid hlustid a lagid fra Georgia.
Ukranina atti svo sannarlega skilid ad vinna tessa keppni. Godur humor i gangi
xref (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 00:49
Ég verð víst að éta heybaggann sjálf í skjóli kosninga...
Ragnheiður Skúla (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 06:49
Fínt lag...ef svo má segja sem vann, hefði samt viljað sjá Pípuhattana ofar, og Grikki. EN ofar öðru var það eina sem bjargaði þessu var einmitt frábær lýsing hjá þér
Árný Sesselja, 13.5.2007 kl. 10:29
Júróvisjón virðist vera nöturlegur sálarspegill fyrir okkur Íslendinga (og fleiri). Jafnvel geðþekkir menn eins og Eiríkur okkar Hauksson virðast breytast í tapsára vælukjóa okkur til skammar - við ættum í framtíðnni að skipuleggja áfallahjálp fyrir keppendur okkar áður en fjölmiðlar komast að þeim.
Það þarf enga mafíustarfsemi til að skýra gott gengi laga frá austurhluta Evrópu. Aðrir bloggarar hafa bent á mikinn áhuga á Júróvision á þessu svæði. Eftir að þjóðir í austurhluta Evrópu endurheimtu frelsi sitt hefur þjóðfélagsþróunin verið gríðarlega hröð. Ég hef oft verið á þessu svæði undanfarin 15 ár og maður hefur þurft að hemla andlega við að koma hingað heim. Þjóðirnar eru á hraðferð að miðju Evrópu (og þær eru að endurskilgreina hvar sú miðja liggur). Brennandi áhugi á Júróvision endurspeglar þetta. Svo má heldur ekki gleyma að svæðið er ríkt af tónlistarhefð (klassík, þjóðlagatónlist, dægurtónlist og allt í bland) sem er jafnframt samgróin daglegu lífi og mikill áhugi er á tónlistinni. Útkoman úr öllu þessu er tónlist sem oft er flutt af meiri ferskleika og brennandi ákefð en frá ýmsum þreyttum iðnaðarraulurum að vestan. Margar þjóðirnar búa einnig að frábærri grafískri hefð sem hjálpar til að skreyta sýninguna og gefa henni þann kraft sem þarf til að vinna. Árangurinn blasir við og atkvæðin sem efstu lögin eru að fá koma einnig frá Vestur-Evrópu.
Ef þú lest þetta Sigmar minn, þá langar mig til að þakka þér fyrir að hafa á laugardagskvöldið dregið úr háði í garð fólks frá Austur-Evrópu, sem hefur m.a. flust hingað til að vinna störf sem við viljum ekki. Það særði marga í fyrra og á fimmtudagskvöldið. Þú ert með góðlátlegt grín að mörgu í þáttunum og það er bara fínt, enda vinsælt. Málið snýst ekki um að það megi ekki gera grín að fólki frá Austur-Evrópu, þvert á móti! Það sem særir er hins vegar vanþekkingin og fordómarnir sem breytir gríni í háð (svipað og brandarar um Íslendinga og snjóhúsin sem þeir búa í og annað verra).
sig-e (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 10:33
þetta var ágætt, óhætt að segja að þú Simmi hafir bara bjargað þessu laugardagskvöldi :)
Anna (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 10:46
Úkraína var eini ljósi punkturinn í þessari leiðinlegu keppni, hló alltaf jafn mikið að sjá þetta mannlega geimskip.
Hafþór H Helgason, 13.5.2007 kl. 12:07
Ég er sátt við vinningslagið en mjög ósátt við þá staðreynd að hafa ekki fengið að fylgjast með keppninni til enda vegna fyrstu talna í kosningunum. Mér finnst ég hafi verið að horfa á bíómynd sem vantar endinn á.
Magnþóra (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 15:28
Bömmer að úkraína skyldi ekki vinna? Hvað meinarðu? Um hvað er keppt í þessari keppni? Um besta skemmtiatriði?
Helgi Viðar Hilmarsson, 13.5.2007 kl. 16:28
Ég er sáttur með Molitva laginu. Sérstaklega vegna þess að stelpa Maria erifović er als ekki eintomma mont. Hún er og var fyrir Eurovisjón oskop venjulegt. Mér þykkist sérstaklega gott að móðir hennar lagði ínn í hennar sígur 10.000 . Molitva vann og móðir fær útborgun um 65.000 sem er í Serbíu töluvert mikið peningur.
Svo var ég hlusta mörg lög einu sinni en. Það heyrist örðuvissi án mynd og má tákna að okkar slóvenska lagið lendi neðarlega einmitt vegna búningar sem minna mikið á vampirar og norn. :)
Ég held að umræða um vestur og austur ætti að ljúka. Mörg lög frá mið, austur og suður Evrópu voru einfaldlega betri en þeir frá norður og vesturlöndum. Þetta þýðir heldur ekki að breytingar í kosningar í framtiði eiga sér ekki stað. Núverandi kerfi er frekar óréttát að mati flesta.
Andrés.si, 13.5.2007 kl. 16:31
Þetta er nú meira vælið alltaf hreint. Vælandi yfir Austur-Evrópusamsæri þótt greinilegt var að bestu lögin komu þaðan. Öll skandinavísku lögin voru léleg og það er staðreynd. Þá tek ég okkar framlag með í því. Slakt lag og döpur sviðsframkoma. Enda sást það á kosningunni frá fimmtudagskvöldinu. Ísland fékk einingis 46 stig frá allri Evrópu. 12 frá Finnum, 12 frá Noregi, 12 frá Svíum og viti menn 10 frá Danmörku. Þvílíkt Austantjaldssamsæri! Meira að segja Bretum og Írum þótti lagið dapurt. Það er fáránlegt að ætla að kenna einhverju samsæri um að við komust ekki áfram. Síðan undankeppnin byrjaði höfum við sent Selmu (náði sér engan veginn á strik á keppniskvöldinu með dansara sem lágu á gólfinu og í rauðum grímubúning), Silvíu Nótt (einkahúmor Íslendinga sem tók okkur nokkra mánuði að fatta. Samt ætluðumst við til þess að Evrópa myndi fatta brandarann á 3 minútum), og síðan sendum við Eika Hauks sem hafði enga útgeislun á sviðinu syngjandi lag sem er hvorki rokk né ballaða. Við erum bara búinn að senda slök lög undanfarin ár og það tengist ekkert Austur-Evrópu. Allar hinar skandinavísku þjóðirnar hafa komist áfram einfaldlega vegna þess að þau hafa sent lög sem hafa átt skilið að komast áfram Það höfum við ekki gert því miður. Hættum þessu væli og tuði og höfum gaman að Eurovision.
KV (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 17:06
Ungverski blúsinn bar af. Góð söngkona, gott lag, fagmannleg útsetning og góður hljóðfæraleikur. Fyrsta sinn sem ég heyri Evrovision lag sem höfðar til mín síðan 1974. Mig langar í plötu með þessari stúlku.
Sigga (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 17:13
ÆÆ Úff , Sigmar til hamingju með íslandsmetið þitt í fimmaura bröndurum,, ég er ekki enn laus við kjánahrollinn!!!
tóti (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 17:33
Ef einhver stað er samsæri, er það hérlendis. Ætlið þíð segja mér að hér er engin betri söngvari heldur Eirikur? Satt að segja átti ég í smá spjalli við öflugan mann. Þeir sem ráða hér heima stríkuðu hann bara út. Reyndar ekki í ári, heldur áður. Hef heyrt hans tónlíst og maður gæti komist í topp 5 á Eurovision. Nema hvað hann heitir ekki Eirkirur. En maður er ekki með neinn eða ekki mikið tengs, því endadi plata í smá hlustun og það var buið. Samsæri?
Andrés.si, 13.5.2007 kl. 17:45
Mér finnst þetta ógeðslega fyndið, að tuða yfir gengi vestur Evrópu. Lögin voru bara hvort öðru verra! Það var ekkert lag frá Vestur Evrópu gott! Svo koma Austur Evrópulöndin, mörg hver með frábæra lagasmíðar. Serbía... OMG hvað lagið var æðislegt, Slóvenía líka en það var ekki að raka inn stigum.
Austur Evrópu mafían... hvað með skandínavísku mafíuna, 12 stig fengum við frá 3 Norðurlöndum og 10 frá hinu!!
Lagið okkar breyttist úr frábæru lagi yfir í la la lag með þessum fáránlega texta. Ég er afskaplega fegin að við komumst ekki áfram, hefðum ekki átt það skilið. Jafnvel þótt Eiki sé frábær og allt það.
Linda (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 17:57
Sigmar, hefurðu eitthvað vit á tónlist ??
Vilhelm Harðarson (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 18:15
Ég held að vandamálið liggi ekki í Austur vs. Vestur Evrópa. heldur í stigagjöfinni. Var staddur í Þýskalandi þegar Eiríkur steig á svið, og náði ekki að gefa honum eitt atkvæði á þessum 15 mínútum sem eru gefnar í atkvæðagjöf. Það þarf lengri tíma í atkvæðin, og keppnin fór gersamlega í vaskinn þegar símakosningin var leyfð.
En sem betur fer vann besta atriðið þegar öllu var á botninn hvolft og því miður burt séð frá öllum austur vs. vestur fordómum þá voru danska,norska, Svissneska og íslenska lagið ekki í topp tíu í forkeppninni því þetta voru léleg lög. Holland var eina lagið af vestur evrópu sem átti skilið að komast þarna upp. Eini virkilegi bömmerinn var Búlgaría og Georgía, aðrir áttu skilið að komast upp.
Matti (IP-tala skráð) 13.5.2007 kl. 21:11
Ég verð nú að segja eins og er að sjaldan hefur lagavalið verið jafn breitt og metnaðarfult eins og akkúrat í þessari keppni. Serbía fannst mér með lang flottasta lagið. Ég fékk hreinlega gæsahúð af að hlusta á það..
Austantjaldsþjóðirnar voru með betri lög svona yfir heildina.. skil nú samt ekki hvað tyrkir og armenía fengu mikið. Hlýtur að hafa verið einhver misskilningur.
Sigmar, þú ert besti euroþulur sem til er.. haltu áfram að vera svona skemmtilegur
Björg F, 13.5.2007 kl. 23:25
nei, hættu því núna
Guðríður Pétursdóttir, 13.5.2007 kl. 23:35
Simar! Maður sigar ekki keppni. Maður sigrar EINHVERN, og VINNUR keppnina. Þetta er grundvallaratriði í íslensku, og fjölmiðlafólk á að hafa þetta á hreinu. :)
Jon G. Sveinsson (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 10:28
Sigmar! Maður sigar ekki keppni. Maður sigrar EINHVERN, og VINNUR keppnina. Þetta er grundvallaratriði í íslensku, og fjölmiðlafólk á að hafa þetta á hreinu. :)
Jon (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 10:30
Ég er ánægð með sigurlagið, það var lang besta lagið af þeim sem kepptu. Lagið í öðru sæti var að mínu mati monotonískt auk þess sem erfitt er að raula það. Ég er ánægð með þetta miða við söðu mála. Vona svo bara að keppninni verði breytt, það er ekkert vit í að hafa þetta með þessum hætti.
Kolbrún Baldursdóttir, 14.5.2007 kl. 10:56
Hérna er það.
http://www.flyupload.com/?fid=7557956
Andrés.si, 14.5.2007 kl. 12:06
Ég mæli með að fólk lesi þessa grein þar sem kemur fram að ef bara Norðurlöndin og hin fjögur stóru (Bretland, Frakkland, Þýskaland og Spánn) hefðu kosið þá hefðu 8 af topp 10 samt haldist inni á topp 10!
http://panama.is/index.php?action=folkid&id=5172
Can't blame it all on the east.
Sighvatur (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 15:08
Já þetta er mjög athyglisvert, greinilegt að við ættum að líta í eigin barm og skammast okkar.
Annars hringdi Kenan Dogulu vinur minn frá Tyrklandi í mig og var afar ósáttur að þú, kæri Sigmar, hafi ítrekað kallað hann Kenan Dólúg, en það þýðir kúkur á tyrknesku.
Rut (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 15:49
Dogulu er borið fram sem Dúlúg samkvæmt því sem sagt var við Evrópsku sjónvapsþulina á sameiginlegum fundi fyrir keppni. Einnig að hinn þýski Roger heitir Rúsjer.
Sigmar Guðmundsson, 14.5.2007 kl. 15:57
sko það land sem átti skilið að vinna var grikkland eða spánn !...að vísu var serbía ekki allslæmt og mjög vel sungið en ég hélt með grikklandi og spáni !
dizaa (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 21:06
Takk fyrir frábæra kynningu Simmi. Öskraði af hlátri hvað eftir annað. Held að ég gæti næstum því horft á fótbolta í sjónvarpinu ef að þú myndir vera í þessum gír að kynna. Legg til að við hættum að tuða yfir austantjaldslögunum en skráum Færeyinga, Álandseyjar, Grænland, Vestmannaeyjar og fleiri góðar eyjar inn í keppnina til að ná okkur upp úr 13 sætinu og í það 12.
Perlan (IP-tala skráð) 14.5.2007 kl. 23:51
Ég kaus Georgíu, fannst það bera af ásamt Serbíu í undankeppninni. Horfði ekki á úrslitakeppnina en ég held að Georgíulagið hafi alveg átt skilið 12. sætið. Það þýðir ekki alltaf að vera svona sár útaf skemmtun eins og Júróvisíon. Sjálfur var ég mjög hissa þegar Eki vann hér heima, fannst lagið drulluslappt. Held að við bara teljum okkur alltaf trú um að okkar lag sé það besta hverju sinni hversu slappt það er. Ég hefði t.d. viljað sjá Sigmar lýsa keppenda t.d. frá Þýskalandi sem væri rauðhærður, fimmtugur rokkari í leðurdressi að syngja rokkballöðu. Gæti trúað því að sú lýsing hefði verið ansi fyndin á köflum..........
Sigfús Þ. Sigmundsson, 15.5.2007 kl. 09:47
Allir hafa skoðun á júró og keppast um leið að reyna að sannfæra alla um að þeim sé "nákvæmlega sama um þessa ömurlegu keppni". Það virðist ljóst að áhuginn er meiri í austur-evrópu og á norðurlöndunum, en annars staðar í evrópu.
Annars fannst mér atriði Serbíu afar leiðinlegt og versna með hverri áhlustun. Sum lög hafa tilhneigingu til að batna við hlustun, en ekki þetta. Finnska og slóvenska fannst mér að hefði átt að berjast um efsta sætið... þar sem finnar hefðu átt að merja sigur á síðustu stigagjöf.
krossgata, 15.5.2007 kl. 12:01
Er ekki bara málið að hætta þessari símakosningu og taka upp gömlu góðu dómnefndirnar?
eiríkur (IP-tala skráð) 15.5.2007 kl. 22:11
..mig dreymdi Eurovision keppnina....
Benedikt Halldórsson, 16.5.2007 kl. 11:10
neeh er ekki málið að halda sér keppni fyrir þessar austur evrópu svo við hin eigum smá séns??
hrönn (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 12:02
meyry ánsgods vitlsanaltsman.
Ha.
german Lux (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 04:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.